Efstu átta

Halla Karen Kristjánsdóttir

Íþróttakennari

Kennir við Borgarholtsskóla ásamt því að þjálfa eldri borgara í Mosfellbæ. Býr á Helgafelli 5 er gift Elíasi Níelssyni og á þrjú börn, eitt barnabarn og kisu. Hefur búið í Mosfellbæ í 27 ár. Er jákvæð, vinnusöm og góð í samskiptum

Aldís Stefánsdóttir

viðskiptafræðingur með diplóma í opinberri stjórnsýslu

Fædd og uppalin á Siglufirði en hefur búið í Mosfellsbæ í 19 ár. Gift Ingvari Ormarssyni atvinnuflugmanni og saman eigum við þrjú börn og hund. Er traust, félagslynd og heiðarleg.

Sævar Birgisson

vörustjóri og viðskiptafræðingur með diplóma í opinberri stjórnsýslu

Uppalinn á Sauðárkróki, hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 2014. Er í sambúð með Evu Rún Þorsteinsdóttur og eiga þau 2 börn. Er traustur, duglegur og kappsamur

Örvar Jóhannsson

Rafvirki

Fæddur og uppalinn á Seyðisfirði og bjó þar óslitið þar til sumarið 2019 þegar hann ásamt fjölskyldu sinni flutti í Mosfellsbæ. Er giftur Söndru Guðmundsdóttur og eiga þau 3 börn. Er réttsýnn og lausnamiðaður og liggur ekki á skoðunum sínum

Leifur Ingi Eysteinsson

starfsmaður í félagsmiðstöð og háskólanemi

Hefur búið í Mosfellsbæ alla sína ævi. Er í sambúð með Ólöfu Pálínu Sigurðardóttur. Er jákvæður, traustur og ákveðinn.

Erla Edvarsdóttir

kennari við Lágafellsskóla og nemi í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst

Flutti í Mosfellsbæ árið 1991 frá Höfn í Hornafirði en bjó einnig í Englandi í 7 ár. Er gift Viktori Viktorssyni og saman eiga þau 5 börn, 3 barnabörn og kött. Er jákvæð, þrautseig og drífandi.

Hrafnhildur Gísladóttir

tómstunda- og félagsmálafræðingur

Starfar sem verkefnastjóri hjá Samfés, samtökum félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi. Gift Þór Gíslasyni, eiga fimm börn og tvö barnabörn. Er fædd og uppalin í Mosfellsbæ og hefur búið í Mosfellsbæ alla tíð fyrir utan 6 ára búsetu í Svíþjóð. Er skapandi, drífandi og lausnamiðuð.

Þorbjörg Sólbjartsdóttir

kennari við Helgafellsskóla

Fædd í Færeyjum en ólst upp á Akranesi og flutti í Mosfellsbæ árið 2006. Er gift Árna Frey Einarssyni og eiga þau saman 3 börn og kisu.
Er þrjósk, drífandi og áreiðanleg.